Öll verð eru tilgreind án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.
Verð fyrir uppsetningu heimasíðu er það verð sem stendur í samþykktu tilboði. Því verði breytum við ekki eftir á. Breytist umfangið að ósk viðskiptavinar gildir gr. 6 um viðbótarvinnu.
Mánaðarlegt gjald fyrir hýsingu og umsjón getur breyst. Við tilkynnum um breytingu með tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara og hækkum ekki oftar en einu sinni á hverjum tólf mánuðum.
Viðskiptavinur sem sættir sig ekki við hækkun má segja hýsingunni upp án nokkurs kostnaðar eða viðurlaga, hvenær sem er áður en hún tekur gildi. Uppsögnin gildir þá frá þeim degi sem hækkunin átti að taka gildi og 30 daga uppsagnarfrestur gr. 12 á ekki við. Þá helst óbreytt verð út þann þjónustutíma sem þegar er greiddur. Sé þjónustunni ekki sagt upp fyrir gildistökudag telst hækkunin samþykkt.
Hækki verð á þjónustu þriðja aðila sem er nauðsynleg fyrir rekstur heimasíðunnar má færa þá hækkun á viðskiptavin. Þetta á til dæmis við um hýsingu, lénaskráningu, fyrirspurnarform, tölvupóstþjónustu, öryggisskírteini og greiðslumiðlun.
Þá gildir sami 30 daga fyrirvari og sami uppsagnarréttur og að ofan, og hækkunin má ekki vera hærri en hækkunin sem við sjálf verðum fyrir. Óski viðskiptavinur eftir því gerum við grein fyrir henni.
Breytingar á virðisaukaskatti eða öðrum opinberum gjöldum falla utan þessarar greinar. Þær koma fram á reikningi frá gildistökudegi og teljast ekki verðhækkun í skilningi hennar.